Jarðskorpan skiptist í meginlandsskorpu og úthafsskorpu. Meginlandsskorpan er 30-40 km þykk og úthafsskorpan er 7-11 km þykk. Meginlandsskorpan er þykkust undir fellingafjöllunum, þar hefur henni verið þrýst saman. Helstu frumefni jarðskorpunnar eru Súrefni, kísill, ál og járn.