Möttullinn er um 2900 km þykkt lag milli kjarnans og jarðskorpunnar. Hann er að mestu leyti úr föstum efnum en möttulbergið getur verið mjög lint vegna varma og þrýstings. Varminn berst með iðustraumum og möttulstrókum frá kjarnanum. Hitastig möttulsins er um 3250°C.